Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera
sprengihætta. Farðu eftir leiðbeiningum sem gilda hverju
sinni. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu
eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll.
Slökkva skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo sem við
eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir
í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og
dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem
verið er að sprengja. Svæði þar sem kann að vera
sprengihætta eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á
meðal eru svæði þar sem ráð gæti verið að slökkva á vél
bifreiðar, í farrýmum skipa, í efnageymslum eða við
182 Vöru- og öryggisupplýsingar
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
efnaflutninga og þar sem efni eða agnir, s.s. ryk, sót eða
málmduft gæti verið í lofti. Þú ættir að leita upplýsinga hjá
framleiðendum farartækja sem nota jarðgas (líkt og
própan eða bútan) til að ákvarða hvort hægt sé að nota
þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.