Nokia E5 00 - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki,

þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar

aðgerðir. Ef tækið styður símtöl á internetinu (netsímtöl)

skaltu bæði kveikja á farsímanum og á netsímtölum.

Tækið getur reynt að koma á neyðarsímtölum í

farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala ef bæði

eru virk. Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar

aðstæður. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust

tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í

bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal

hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir

einnig þurft að ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu

þínu:

Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt

kort.

Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið

í tækinu þínu.

Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða

flugsniði í virkt snið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa

skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3

Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi

svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Styddu á hringitakkann.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar

upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa

tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má

slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.