Nokia E5 00 - Gagnatengingar og aðgangsstaðir

background image

Gagnatengingar og aðgangsstaðir

Tækið styður pakkagagnatengingar

(sérþjónusta), líkt og GPRS í GSM-

símkerfi. Þegar tækið er notað í GSM- og

UMTS-símkerfum er hægt að hafa

margar gagnatengingar í gangi

samtímis og aðgangsstaðir geta deilt

gagnatengingu. Í UMTS-símkerfinu er

ekki slökkt á gagnatengingu þegar

símtal er í gangi.
Einnig er hægt að koma á

gagnatengingu við þráðlaus staðarnet.

Aðeins er hægt að tengjast við einn

aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í

einu, en nokkur forrit geta hins vegar

notað sama aðgangsstaðinn.
Til að koma á gagnatengingu verður

aðgangsstaður að hafa verið valinn.

Hægt er að tilgreina mismunandi gerðir

aðgangsstaða, líkt og:

MMS-aðgangsstað til að senda og

taka við margmiðlunarskilaboðum,

Internetaðgangsstað (IAP) til að

senda og taka við tölvupósti og

tengjast við internetið

Upplýsingar um hvaða gerð

aðgangsstaðar þarf að nota fyrir

tiltekna þjónustu fást hjá þjónustuveitu.

Þjónustuveitan gefur upplýsingar um

pakkagagnaþjónustu og áskrift að

henni.