Gagnasnúra
Ekki taka USB-snúruna úr sambandi
meðan á flutningi stendur, því það gæti
skemmt gögn.
Til að flytja gögn milli tækisins og
tölvu.
1 Settu minniskort í tækið þitt og
tengdu tækið við samhæfa tölvu
með gagnasnúrunni.
2 Þegar tækið spyr hvaða stillingu á
að nota velurðu
Gagnaflutningur
.
Í þessari stillingu geturðu séð tækið
þitt sem utanáliggjandi harðan disk
í tölvunni.
3 Slíta skal tengingunni í tölvunni (til
dæmis með hjálparforritinu Unplug
or Eject Hardware (taka vélbúnað úr
sambandi) í Windows) til að
skemma ekki minniskortið.
Til að nota Nokia Ovi Suite með tækinu
seturðu Nokia Ovi Suite upp á tölvunni,
tengir gagnasnúruna og velur
PC Suite
sem USB-tengiaðferð.
Til að samstilla tónlistina í tækinu þínu
við Nokia Ovi Player seturðu Nokia Ovi
Player upp á tölvunni, tengir
gagnasnúruna og velur
PC Suite
sem
USB-tengiaðferð.
Til að breyta USB-stillingunni sem þú
notar yfirleitt með gagnasnúrunni
velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
USB-snúra
og
USB-
tengistilling
og viðeigandi valkost.
Til að láta tækið spyrja um stillinguna í
hvert skipti sem þú tengir
gagnasnúruna við tækið velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
USB-snúra
og
Spyrja við tengingu
>
Já
.