Ytri SIM-stilling
Áður en hægt er að velja þetta verða
tækin að vera pöruð saman og kveikja
þarf á pöruninni í hinu tækinu. Við
pörun skal nota 16 stafa aðgangskóða
og stilla hitt tækið á leyfilegt.
Til að nota ytri SIM-stillingu með
samhæfum bílbúnaði skaltu kveikja á
Bluetooth og svo á ytri SIM-stillingu í
tækinu.
Kveiktu á ytri SIM-stillingu í hinu tækinu.
Þegar kveikt er á ytri SIM-stillingu í
tækinu birtist
Ytra SIM
í biðstöðu.
Slökkt er á tengingunni við þráðlausa
símkerfið, og það er gefið til kynna með
í sendistyrksvísinum. Þá er ekki hægt
að nota þjónustu SIM-kortsins eða
valkosti þar sem tenging við símkerfið
er nauðsynleg.
Þegar ytri SIM-stilling hefur verið valin í
þráðlausa tækinu er aðeins hægt að
hringja og svara símtölum með
samhæfum aukahlut sem er tengdur við
það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt að
Tengingar 71
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
hringja úr þráðlausa tækinu þegar
stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið
sem er forritað í tækið. Til að hringja úr
tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-
stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal
fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna
það.
Slökkt er á ytri SIM-stillingunni með því
að ýta á rofann og velja
Loka ytri SIM
.