Nokia E5 00 - Um Bluetooth-tengingar

background image

Um Bluetooth-tengingar

Með Bluetooth-tækni er hægt að koma

á þráðlausri tengingu við önnur samhæf

tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól

og bílbúnað.
Hægt er að nota tenginguna til að senda

myndir, myndskeið, tónlist, hljóðskrár

og minnismiða, senda skrár frá

samhæfri tölvu og til að prenta myndir

með samhæfum prentara.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota

útvarpsbylgjur til samskipta þurfa tækin

ekki að vera í beinni sjónlínu hvert við

annað. Hin vegar þurfa þau að vera í

innan við 10 metra (33 feta) fjarlægð

hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á

tengingunni vegna hindrana eins og

veggja eða annarra raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth

Specification 2.0 + EDR sem styður

eftirfarandi snið: Advanced Audio

Distribution, Audio Video Remote

Control, Basic Imaging, Basic Printing,

Dial-up Networking, File Transfer,

Generic Access, Hands-free, Headset,

Human Interface Device, Object Push,

Phone Book Access, SIM Access, Serial

Port, Service Discovery Application,

Generic Object Exchange. Til að tryggja

samvirkni milli annarra tækja sem

styðja Bluetooth-tækni skal nota

aukabúnað sem eru viðurkenndir af

Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal

upplýsinga hjá framleiðendum annarra

tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth

ganga á rafhlöðu símans og draga úr

endingu hennar.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að

tengja það við leyfð tæki.