Nokia E5 00 - Pörun tækja

background image

Pörun tækja

Til að parast við samhæf tæki og sjá

hvaða tæki eru pöruð opnarðu aðalskjá

Bluetooth og flettir til hægri.

Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið

lykilorð (1 til 16 tölustafir) og biðja

eiganda hins tækisins um að nota sama

lykilorð. Tæki sem ekki eru með

notandaviðmót eru með fast lykilorð.

Lykilorðið er aðeins notað einu sinni.
1 Parast er við tæki með því að velja

Valkostir

>

Nýtt parað tæki

. Tæki

sem eru innan svæðisins birtast.

2 Veldu tæki og sláðu inn lykilorðið.

Slá verður sama lykilorð inn í hitt

tækið.

3 Sumir hljóðaukahlutir tengjast

tækinu sjálfvirkt eftir pörun. Flettu

að öðrum kosti að aukahlutnum og

veldu

Valkostir

>

Tengjast við

hljóðtæki

.

Pöruð tæki eru auðkennd með í

tækjaleitinni.
Til að tilgreina tæki sem heimilt eða

óheimilt skaltu fletta að því og velja svo

úr eftirfarandi valkostum:

Stilla sem heimilað — Hægt er að

koma á tengingu milli tækisins þíns og

hins tækisins án vitneskju þinnar. Ekki

þarf að samþykkja eða heimila

tenginguna sérstaklega. Notaðu þessa

stillingu fyrir þín eigin tæki, s.s.

samhæft höfuðtól eða tölvu, eða tæki

þeirra sem þú treystir. táknar

samþykkt tæki á skjá paraðra tækja.

Stilla sem óheimilað — Samþykkja

þarf beiðnir um tengingu frá þessu tæki

sérstaklega hverju sinni.

Hætt er við pörun með því að velja tækið

og síðan

Valkostir

>

Eyða

.

Hætt er við allar paranir með því að velja

Valkostir

>

Eyða öllum

.