Um þráðlaust staðarnet
Til að geta notað þráðlaust staðarnet
verður slíkt net að vera til staðar og
tækið að vera tengt þráðlausu
staðarneti. Sum þráðlaus staðarnet eru
varin og það þarf að fá aðgangsorð hjá
þjónustuveitunni til að geta tengst
þeim.
Til athugunar: Notkun
þráðlauss staðarnets kann að vera
takmörkuð í einhverjum löndum. Í
Frakklandi er aðeins heimilt að nota
þráðlaust staðarnet innandyra. Nánari
upplýsingar fást hjá yfirvöldum á
staðnum.
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet
eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í
bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru
notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku
og minnka endingartíma rafhlöðunnar.
Notaðu dulkóðun til að auka á öryggi
tengingarinnar við þráðlausa
staðarnetið. Notkun dulkóðunar dregur
úr hættunni á því að einhver fái aðgang
að gögnunum þínum án heimildar.