Nokia E5 00 - SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

background image

SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

Mikilvægt: Ekki skal nota mini-

UICC SIM-kort, einnig þekkt sem micro-

SIM-kort, micro-SIM-kort með

millistykki eða SIM-kort með mini-UICC

straumloka (sjá mynd) í þessu tæki.

Micro SIM-kort er minna en venjulegt

SIM-kort. Þetta tæki styður ekki notkun

micro SIM-korta og ef ósamhæf SIM-kort

eru notuð getur það valdið skemmdum

á minniskortinu eða tækinu sjálfu og

gögn sem geymd eru á kortinu geta

skemmst.

Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á

tækinu og aftengja hleðslutækið áður

en rafhlaðan er fjarlægð.
1 Fjarlægðu bakhliðina.

2 Ef rafhlaðan er í skaltu taka hana úr.

Tækið tekið í notkun 11

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

3 Ýttu festingu SIM-kortsins til að taka

það úr lás og opnaðu það svo. Settu

SIM-kortið í þannig að

snertiflöturinn snúi niður í

festingunni og settu festinguna

aftur á sinn stað. Ýttu festingunni til

að læsa henni.

4 Gættu að snertum rafhlöðunnar og

settu rafhlöðuna í.

5 Settu bakhliðina aftur á sinn stað.