Góð ráð við að koma á GPS-tengingu
Ef tækið finnur ekki gervihnattamerki
gættu þá að eftirfarandi atriðum:
•
Sértu innanhúss skaltu fara út til að
ná betra merki.
•
Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
•
Gakktu úr skugga um að höndin sé
ekki yfir GPS-loftneti tækisins.
•
Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á
sendistyrkinn.
•
Sum farartæki eru með skyggðum
rúðum og ekki er víst að
gervihnattamerki berist í gegnum
þær.
Athugaðu stöðu gervihnattamerkja
Til að athuga hvað tækið þitt fann mörg
gervitungl og hvort það tekur á móti
gervihnattamerkjum skaltu velja
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
>
GPS-gögn
og
Valkostir
>
Staða
gervitungla
.
Ef tækið hefur fundið gervitungl birtist
stika fyrir hvert þeirra á
upplýsingaskjánum fyrir gervitungl. Því
lengri sem stikan er, því sterkara er
merkið frá gervitunglinu. Stikan skiptir
litum þegar tækið hefur fengið nægar
upplýsingar frá gervihnattamerkinu til
Staðsetning (GPS) 89
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
að geta reiknað út hnit staðsetningar
þinnar.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá
a.m.k. fjórum gervitunglum til að geta
reiknað hnit staðsetningar þinnar.
Þegar frumútreikningur hefur farið fram
kann það að vera mögulegt að reikna út
hnit fyrir staðsetninguna þína með
þremur gervitunglum. Hins vegar er
útreikningurinn nákvæmari þegar fleiri
gervitungl finnast.