A-GPS (Assisted GPS)
Tækið styður einnig GPS með leiðsögn
(A-GPS).
A-GPS þarf netstuðning.
Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá
hjálpargögn með pakkagagnatengingu
og hjálpar við að reikna út hnit
staðsetningar þinnar þegar tækið tekur
við merkjum frá gervitunglum.
Þegar þú kveikir á A-GPS tekur tækið á
móti gervihnattaupplýsingar frá
hjálpargagnamiðlara um farsímakerfið.
Tækið getur verið fljótara að ná GPS-
staðsetningu ef hjálpargögn eru notuð.
Tækið er forstillt þannig að það noti
Nokia A-GPS þjónustuna, ef engar
sérstakar A-GPS stillingar frá
þjónustuveitunni eru í boði.
Hjálpargögnin eru aðeins sótt frá Nokia
A-GPS þjónustumiðlaranum þegar þörf
krefur.
A-GPS þjónustan er gerð óvirk með því
að velja
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
>
GPS-gögn
og
Valkostir
>
Stillingar staðsetninga
>
Staðsetningaraðferðir
>
GPS með
stuðningi
>
Valkostir
>
Slökkva
.
Það verður að vera
internetaðgangsstaður í tækinu til að
hægt sé að sækja hjálpargögn frá Nokia
A-GPS þjónustunni um
pakkagagnatengingu. Hægt er að
tilgreina aðgangsstað fyrir A-GPS í
staðsetningarstillingum. Ekki er hægt
að nota aðgangsstað fyrir þráðlaust
staðarnet (WLAN) fyrir þessa þjónustu.
Aðeins er hægt að nota
internetaðgangsstað fyrir pakkagögn.
Tækið biður þig um að velja
internetgangsstaðinn í fyrsta skipti sem
GPS er notað.
88 Staðsetning (GPS)
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.