Ritun og sending skilaboða
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Mikilvægt: Fara skal með gát
þegar skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta
innihaldið skaðlegan hugbúnað eða
52 Skilaboð
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
skaðað tölvuna eða tækið á einhvern
annan hátt.
Til að geta búið til
margmiðlunarskilaboð eða skrifað
tölvupóst verða réttar tengistillingar að
vera fyrir hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka
stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem
bætt er inn fer yfir þessi mörk gæti
tækið minnkað hana þannig að hægt sé
að senda hana með MMS.
Athugaðu stærðartakmörk
tölvupóstskeyta hjá þjónustuveitunni.
Ef þú reynir að senda tölvupóst sem er
yfir mörkum tölvupóstmiðlarans eru
skilaboðin áfram í möppunni Úthólf og
tækið reynir reglulega að senda þau.
Gagnatenging er nauðsynleg til að
senda tölvupóst og endurteknar
tilraunir til að senda tölvupóst kunna að
auka kostnað vegna gagnaflutnings.
Hægt er að eyða slíkum skilaboðum í
möppunni Úthólf eða færa þau yfir í
möppuna Drög.
1 Veldu
Ný skilaboð
.
2 Til að senda texta- eða
margmiðlunarskilaboð velurðu
Skilaboð
. Til að senda
margmiðlunarskilaboð sem
innihalda eina hljóðskrá velurðu
Hljóðskilaboð
. Tölvupóstur er
sendur með því að velja
Tölvupóst
.
3 Í Til-reitnum skaltu ýta á
skruntakkann til að velja
viðtakendur eða hópa af
tengiliðalistanum, eða slá inn
símanúmer eða netfang
viðtakandans.. Einnig er hægt að
afrita og líma númer eða
tölvupóstföng af klemmuspjaldinu.
4 Sláðu inn efni margmiðlunarboða
eða tölvupósts í viðkomandi reit. Til
að fela eða birta reiti þegar texta-
eða margmiðlunarskilaboð eru
skrifuð velurðu
Valkostir
>
Skilaboðahausar
.
5 Skilaboðin eru skrifuð í
skilaboðareitinn. Til að setja inn
sniðmát eða minnismiða í texta-
eða margmiðlunarskilaboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja
inn texta
>
Sniðmát
eða
Minnismiða
. Sniðmáti er bætt við
tölvupóst með því að velja
Valkostir
>
Setja inn sniðmát
.
6 Til að bæta miðlunarskrá við
margmiðlunarskilaboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
, tegund
skráar eða slóð og síðan tiltekna
Skilaboð 53
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
skrá. Til að bæta nafnspjaldi,
skyggnu, minnismiða eða einhverri
annarri skrá við skilaboðin velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja
inn annað
.
7 Til að taka mynd eða taka upp hljóð
eða myndskeið fyrir
margmiðlunarboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja
inn mynd
>
Nýja
,
Setja inn
myndskeið
>
Nýtt
eða
Setja inn
hljóð
>
Nýtt
.
8 Til að setja broskarl inn í texta- eða
margmiðlunarskilaboð ýtirðu á
sym-takkann og velur síðan
broskarlinn.
9 Til að festa viðhengi við tölvupóst
velurðu
Valkostir
>
Bæta við
viðhengi
, minnið og skrána sem
festa skal við póstinn. sýnir að
pósturinn er með viðhengi.
10 Veldu
Valkostir
>
Senda
eða ýttu á
hringitakkann til að senda
skilaboðin.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir
eru í boði.
Til athugunar: Táknið um að
skilaboð hafi verið send, eða texti sem
birtist á skjá tækisins, merkir ekki að
viðtakandinn hafi fengið skilaboðin.
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir
takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri
skilaboð eru send sem tvö eða fleiri
skilaboð. Þjónustuveitan tekur
hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur, önnur tákn
eða valkosti sumra tungumála taka
meira pláss og takmarka þann
stafafjölda sem hægt er að senda í
einum skilaboðum.
Ekki er víst að hægt sé að senda
myndskeið sem eru vistuð á MP4-sniði
eða sem fara yfir leyfilega stærð
margmiðlunarboða á símkerfinu.