Stillingar margmiðlunarskilaboða
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
.
Veldu úr eftirfarandi:
Stærð myndar — Breyta stærð mynda
í margmiðlunarskilaboðum.
MMS-gerð — Veldu
Takmörkuð
til að
láta tækið hindra þig í að setja efni inn
í margmiðlunarskilaboð sem símkerfið
eða móttökutækið styður ekki. Til að fá
sendar viðvaranir þegar slíkt efni er
innifalið, skaltu velja
Með
viðvörunum
. Til að búa til
margmiðlunarskilaboð án nokkurra
takmarkana á gerð viðhengis skaltu
velja
Allt
. Ef þú velur
Takmörkuð
getur
þú ekki búið til
margmiðlunarkynningar.
Aðg.staður í notkun — Veldu
sjálfgefna aðgangsstaðinn sem er
notaður til að tengjast við miðstöð
margmiðlunarskilaboða. Ef
þjónustuveitan hefur forstillt sjálfgefna
aðgangsstaðinn er ekki víst að hægt sé
að breyta honum.
Móttaka margmiðlunar — Veldu
hvernig þú vilt taka á móti skilaboðum,
ef sú þjónusta er í boði. Veldu
Alltaf
sjálfvirk
til að fá
margmiðlunarskilaboð alltaf send
sjálfkrafa,
Sjálfv. í heimakerfi
til að fá
tilkynningu um ný
margmiðlunarskilaboð sem hægt er að
sækja frá skilaboðamiðstöðinni (til
dæmis á ferðalögum erlendis eða utan
heimasímkerfis),
Handvirkt val
til að
sækja margmiðlunarskilaboð alltaf
handvirkt, eða
Óvirk
til að loka fyrir
móttöku margmiðlunarskilaboða. Ekki
er víst að sjálfvirk móttaka sé í boði á
öllum svæðum.
Leyfa nafnlaus skilaboð — Taka við
skilaboðum frá óþekktum sendendum.
Fá auglýsingar — Taka við skilaboðum
sem eru skilgreind sem auglýsingar.
Fá tilkynningar — Hægt er að biðja um
staðfestingu á því að skilaboð hafi verið
móttekin og/eða lesin (sérþjónusta).
60 Skilaboð
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Ekki er víst að hægt sé að fá
skilatilkynningar fyrir
margmiðlunarskilaboð sem eru send á
tölvupóstfang.
Neita sendingu tilk. — Veldu
Já
ef þú
vilt ekki að tækið sendi skilatilkynningar
fyrir móttekin margmiðlunarskilaboð.
Gildistími skilaboða — Veldu hversu
lengi skilaboðamiðstöðin á að reyna að
senda skilaboðin (sérþjónusta). Ef ekki
tekst að ná í viðtakanda skilaboða innan
þessa tíma verða skilaboðin fjarlægð úr
miðstöð margmiðlunarskilaboða.
Hámarkstími
er mesti tíminn sem
símkerfið leyfir.
Símkerfisstuðningur þarf að vera fyrir
hendi til að hægt sé að fá staðfestingu
á því hvort send skilaboð hafi verið
móttekin eða lesin. Hugsanlega er
þessar upplýsingar ekki alltaf
áreiðanlegar, það fer eftir símkerfinu og
öðrum aðstæðum hverju sinni.