Skilaboðalestur
Með skilaboðalesaranum geturðu
hlustað á texta-, margmiðlunar- og
hljóðskilaboð, sem og tölvupóst.
Hægt er að hlusta á ný skilaboð eða
tölvupóst á heimaskjánum með því að
halda vinstri valtakkanum inni þar til
skilaboðalesturinn hefst.
Til að hlusta á skilaboð úr innhólfi skaltu
fletta að þeim og velja
Valkostir
>
Hlusta
. Til að hlusta á tölvupóst í
pósthólfi skaltu fletta að honum og velja
Valkostir
>
Hlusta
. Ýttu á hætta-
takkann til að stöðva lesturinn.
Ýttu á skruntakkann til að gera hlé á
lestrinum eða halda áfram. Flettu til
hægri til að hlaupa yfir skilaboð. Flettu
til vinstri til að endurtaka spilun á
skilaboðum eða tölvupósti. Til að fara til
baka í fyrri skilaboðin skaltu fletta til
vinstri þar sem skilaboðin hefjast.
Til að sjá skilaboð eða tölvupóst sem
texta án hljóðs skaltu velja
Valkostir
>
Opna
.