Myndskeið og straumspilun
Til að spila myndskeið velurðu
Myndskeið
og svo myndskeið.
Á aðalskjá forritsins velurðu
Nýlega
spilað
til að sýna skrár voru spilaðar
nýlega.
Til að straumspila efni (sérþjónusta)
velurðu
Straumsp.tengl.
og tengil.
RealPlayer þekkir tvær gerðir tengla:
rtsp:// og http:// slóðir sem vísa í RAM-
skrá. Áður en straumspilun efnisins
hefst þarf tækið þitt að tengjast
vefsvæði og vista efnið í biðminni. Ef
vandamál við tengingu valda villu í
spilun reynir RealPlayer sjálfkrafa að
tengjast aftur við netaðgangsstaðinn.
Til að hlaða myndskeiðum niður af
vefnum velurðu
Sækja myndsk.
.
Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla
hljóðstyrkinn meðan á spilun stendur.
Til að spóla áfram á meðan spilað er
skaltu fletta til hægri og halda inni
takkanum. Til að spóla til baka á meðan
spilað er skaltu fletta til vinstri og halda
takkanum inni.
Til að stöðva spilun eða straumspilun
velurðu
Stöðva
. Vistun í biðminni eða
tenging við straumspilunarstað
stöðvast, spilun myndskeiðs stöðvast
og myndskeiðið fer aftur á byrjun.
Til að skoða myndskeiðið á venjulegum
skjá velurðu
Valkostir
>
Áfram á
venjulegum skjá
.
Miðlar 127
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.