Tækjastika
Tækjastikan er aðeins tiltæk þegar búið
er að velja mynd eða myndskeið á skjá.
Flettu að ýmsum hlutum á
tækjastikunni og veldu viðeigandi
valkost. Valkostirnir sem eru í boði fara
eftir því hvaða skjár er uppi og hvort
búið sé að velja mynd eða myndskeið.
Til að fela tækjastikuna velurðu
Valkostir
>
Fela tækjastiku
. Ýttu á
skruntakkann til að gera tækjastikuna
virka þegar hún er falin.
Veldu mynd eða myndskeið og svo úr
eftirfarandi:
Sýna myndina í landslags- eða
andlitsmyndasniði.
Spila myndskeiðið.
Senda myndina eða
myndskeiðið.
Hlaða myndinni eða
myndskeiðinu upp í samhæft
netalbúm (aðeins hægt ef þú
ert áskrifandi að samhæfu
netalbúmi).
Setja hlutinn í albúm.
Vinna með merki og aðra
eiginleika hlutarins.