Lykilorð
Hafðu samband við þjónustuveituna
þína ef þú gleymir einhverjum af
þessum aðgangsnúmerum.
PIN-númer (Personal identification
number) — Númerið hindrar að SIM-
kortið sé notað í leyfisleysi. PIN-
númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir yfirleitt
með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er
slegið rangt inn þrisvar sinnum er
númerinu lokað og þá þarf að slá inn
PUK-númerið til að opna það.
UPIN-númer — Númerið kann að fylgja
með USIM-kortinu. USIM-kortið er
endurbætt gerð SIM-korts til að nota í
3G-farsímum.
PIN2-númer — Númerið (4 - 8
tölustafir) fylgir sumum SIM-kortum og
er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.
Læsingarkóði (einnig kallaður
öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið
hindrar að tækið sé notað í leyfisleysi.
Forstillta númerið er 12345. Hægt er að
búa til og breyta númerinu og láta tækið
biðja um númerið. Haltu nýja númerinu
leyndu og á öruggum stað fjarri tækinu.
Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst
þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú
getur þurft að greiða viðbótargjald og
persónulegum gögnum í tækinu kann
að verða eytt. Þú getur fengið nánari
upplýsingar hjá Nokia Care
þjónustuaðila eða söluaðila tækisins.
PUK- og PUK2-númer — Þetta númer (8
tölustafir) er nauðsynlegt til að breyta
PIN-númeri eða PIN2-númeri sem hefur
verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með
SIM-kortinu skaltu hafa samband við
þjónustuveituna sem lét þig fá SIM-
kortið.
UPUK-númer — Þetta númer (8
tölustafir) er nauðsynlegt til að breyta
lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir
ekki með USIM-kortinu skaltu hafa
samband við þjónustuveituna sem lét
þig fá USIM-kortið.
IMEI-númer (International Mobile
Equipment Identity number) — Þetta
númer (15 eða 17 stafir) er notað til að
auðkenna gild tæki á GSM-símkerfinu.
20 Lykilorð
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Hægt er að útiloka tæki, til dæmis stolin,
frá aðgangi að netinu. IMEI-númer
tækisins er að finna undir rafhlöðunni.