Nokia E5 00 - Um staðsetningaraðferðir

background image

Um staðsetningaraðferðir

Kort birta staðsetningu þína á kortinu

með GPS, A-GPS eða samkvæmt sendi.
GPS-kerfið (Global Positioning System)

byggir á gervitunglum sem eru notuð til

að reikna út staðsetningu þína. A-GPS

(Assisted GPS) er netkerfisþjónusta þar

sem þú færð send GPS-gögn, og sem

bætir hraða og nákvæmni

staðarákvarðana.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta

skipti er spurt hvort þú viljir tilgreina

netaðgangsstað til að geta hlaðið niður

kortaupplýsingum eða hvort þú viljir

nota A-GPS.

táknar styrk

gervihnattarmerkja. Eitt strik merkir

einn gervihnött. Strikið er gult þegar

tækið leitar að gervitunglum. Strikið

verður grænt þegar næg gögn eru til

Kort 95

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

staðar til að reikna út staðsetningu

þína. Útreikningur á staðsetningu

verður nákvæmari eftir því sem grænu

strikin eru fleiri.
GPS-kerfið (Global Positioning System)

er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla

ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi.

Nákvæmni staðsetningargagna kann að

verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-

gervihnöttum sem gerðar eru af

Bandaríkjastjórn og kann að breytast í

samræmi við stefnu

varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna

um borgaralegt GPS og alríkisáætlun um

þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði

gervihnatta getur einnig haft áhrif á

nákvæmni. Staðsetning, byggingar,

náttúrulegar hindranir auk

veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á

móttöku og gæði GPS-merkja. Verið

getur að GPS-merki náist ekki inni í

byggingum eða neðanjarðargöngum

og þau geta orðið fyrir áhrifum frá

efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar

staðsetningarmælingar og aldrei ætti

að treysta eingöngu á

staðsetningargögn frá GPS-

móttakaranum og símkerfi fyrir

staðsetningu eða leiðsögn.

Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki

fullkominn og sléttunarvillur eru

mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á

móttöku og gæðum GPS-merkja.
Með staðarákvörðun samkvæmt sendi

er staðsetningin ákvörðuð samkvæmt

þeim sendi sem farsíminn er tengdur

við.
Nákvæmni staðarákvörðunar getur

verið allt frá nokkrum metrum og upp í

nokkra kílómetra, allt eftir því hvaða

aðferð er notuð.