Nokia E5 00 - Öryggi tenginga

background image

Öryggi tenginga

Ef öryggisvísirinn birtist á meðan

tenging er virk er gagnasendingin á

milli tækisins og netgáttarinnar eða

miðlarans dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki öryggi

gagnasendingar milli gáttarinnar og

efnisþjónsins (þar sem gögnin eru

geymd). Þjónustuveitan tryggir

gagnasendinguna milli gáttarinnar og

efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg

fyrir tiltekna þjónustu, líkt og

bankaþjónustu. Látið er vita ef uppruni

miðlarans er ekki staðfestur eða ef

tækið inniheldur ekki er rétt

öryggisvottorð. Þjónustuveitan gefur

nánari upplýsingar.

Mikilvægt: Þó að notkun

vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu

sem fylgir fjartengingum og

uppsetningu hugbúnaðar verður að

nota þau rétt svo að aukið öryggi fáist.

Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.

Vottorðastjórinn verður að vera með

rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð

svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru

bundin tilteknum tíma. Ef textinn

„Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið

hefur enn ekki tekið gildi“ birtist þó svo

að vottorðið ætti að vera gilt skal

athuga hvort rétt dag- og tímasetning

sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt

þarf að ganga úr skugga um að

örugglega megi treysta eiganda þess og

að það tilheyri í raun eigandanum sem

tilgreindur er.