Forsendur fyrir samnýtingu
hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda krefst 3G-
tengingar. Nánari upplýsingar um
þjónustuna, tiltæk 3G-símkerfi og gjöld
fyrir notkun þjónustunnar fást hjá
þjónustuveitunni.
Til að geta notað samnýtingu
hreyfimynda þarftu að gera eftirfarandi:
•
Gakktu úr skugga um að tækið þitt
sé sett upp fyrir tengingar á milli
einstaklinga.
•
Gakktu úr skugga um að þú hafir
virka 3G-tengingu og sért innan
þjónustusvæðis 3G-símkerfis. Ef þú
ferð út fyrir 3G-þjónustusvæði
meðan samnýting fer fram, þá
rofnar hún en símtalið heldur
áfram.
•
Gakktu úr skugga um að bæði
sendandinn og viðtakandinn séu
skráðir á 3G-símkerfið. Ef þú býður
einhverjum í samnýtingu og tæki
viðtakandans er ekki tengt við 3G-
símkerfi, eða þá að samnýting eða
P2P hefur ekki verið sett upp í því,
fær viðtakandinn ekki boðið. Þú
færð villuboð um að viðtakandinn
geti ekki þegið boðið.