Raddstýrð hringing
Tækið þitt styður raddskipanir.
Raddskipanir velta ekki á rödd
notandans þannig að hann þarf ekki að
36 Hringt úr tækinu
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
taka upp raddmerki áður en hann notar
þær. Tækið býr til raddmerki fyrir
færslur í tengiliðum og ber það
raddmerki sem notandinn segir saman
við þær. Raddkennslin í tækinu laga sig
að rödd aðalnotandans til að líklegra sé
að tækið beri kennsl á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið sem
er vistað hjá tengiliðnum.
Til að hlusta á tilbúið raddmerki velurðu
tengilið og svo
Valkostir
>
Skoða
upplýsingar
>
Valkostir
>
Um
raddmerki
>
Valkostir
>
Spila
raddmerki
.
Til athugunar: Notkun
raddmerkja getur verið erfið í
hávaðasömu umhverfi eða í
neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta
eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
Hringt með raddmerki
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er
hátalarinn í notkun. Haltu tækinu
nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.
1 Til að hefja raddstýrða hringingu
skaltu halda hægri valtakkanum
inni á heimaskjánum. Ef samhæft
höfuðtól með höfuðtólstakka er
notað skaltu halda takkanum inni til
að hefja raddstýrða hringingu.
2 Stutt hljóðmerki heyrist og textinn
Tala nú
birtist. Berðu nafnið sem er
vistað hjá tengiliðnum skýrt fram.
3 Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir
tengiliðinn og birtir nafnið og
símanúmerið. Ef þú vilt ekki hringja
í tengiliðinn skaltu velja annan
tengilið af lista yfir samsvaranir
innan 2,5 sekúndna eða velja
Hætta
til að hætta við.
Ef nokkur númer voru vistuð fyrir nafn,
velur tækið sjálfgefið númer ef það er
skilgreint. Annars velur tækið fyrsta
nafnið á tengiliðaspjaldi. Þú getur
einnig sagt nafnið og gerð símanúmers,
svo sem númer í farsíma eða
heimasíma.