Nokia E5 00 - Höfundarréttur og önnur ákvæði

background image

Höfundarréttur og önnur ákvæði

YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI

Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-632

er í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar

eru í tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um

samkvæmni er að finna á slóðinni http://www.nokia.com/

phones/declaration_of_conformity/.

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Nokia, Nokia Connecting People og Navi eru vörumerki og

skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er

tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti

fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða

vöruheiti viðkomandi eigenda.

Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á

hluta skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að

fyrirfram fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia

framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia

áskilur sér rétt til að gera breytingar og úrbætur á hvers

konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar

tilkynningar.

Java and all Java-based marks are trademarks or registered

trademarks of Sun Microsystems, Inc.

Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio

License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í

tengslum við upplýsingar sem hafa verið kótaðar

samkvæmt staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda

í persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til

notkunar í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er

hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða

undirskilið til neinnar annarrar notkunar.

Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í

auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá

MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.

AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA

EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM

KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á

GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU,

TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG

SEM ÞAÐ VILL TIL.

INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR

FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ

VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á

NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á

ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI

EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA

ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA

ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR

TILKYNNINGAR.

Bakhönnun (e. reverse engineering) hugbúnaðar í tækinu

er bönnuð eins og lög segja til um. Að því marki er þessi

notendahandbók inniheldur einhverjar takmarkanir á

fyrirsvari, ábyrgðum og skaðabótaskyldu Nokia, auk

takmarkana á fjárhæð skaðabóta, skulu þær takmarkanir

einnig ná til sérhvers fyrirsvars, ábyrgða og

skaðabótaskyldu leyfisveitanda Nokia, auk takmarkana á

fjárhæð skaðabóta.

Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna

að hafa verið búin til og vera í eigu aðila eða fyrirtækja

sem ekki tengjast Nokia. Nokia á ekki höfundarréttindi eða

184 Höfundarréttur og önnur ákvæði

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia

tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni

þessara forrita eða þeim upplýsingum sem fylgja

forritunum eða efninu. Nokia veitir enga ábyrgð á þessum

forritum þriðju aðila. MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR

NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS OG ÞAU KOMA

FYRIR ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM

EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI

LÖGUM. NOTANDINN VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI

NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG VEITA NOKKURS KONAR FYRIRSVAR

EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN

EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA

HÆFNI TIL TILTEKINNAR NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN

BRJÓTI EKKI GEGN EINKARÉTTI, HÖFUNDARRÉTTI,

VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.

Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir

þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu

það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia-söluaðila

þínum. Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða

hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum í

Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á

flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru

óheimilar.

TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi

(til dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki). FCC

eða Industry Canada geta krafist þess að þú hættir að nota

símann ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir.

Ef þú þarft aðstoð skaltu hafa samband við þjónustuaðila

í nágrenni við þig. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta af

reglum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur

skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum;

og (2) tækið verður að taka við öllum truflunum sem það

verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri

virkni þess. Sérhverjar breytingar sem Nokia hefur ekki

samþykkt berum orðum geta ógilt heimild notandans til

notkunar búnaðarins.

/Útgáfa 2.0 IS

Höfundarréttur og önnur ákvæði 185

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.