Notkun lyklaborðsins
1 Virknitakki
2 Skiptitakki
3 Sym-takki
4 Bakktakki
5 Enter-takkinn
6 Ctrl-takki
Skipt milli há- og lágstafa
Til að skipta á milli há- og lágstafa ýtirðu
tvisvar á skiptitakkann. Til að slá inn
einn hástaf í lágstafastillingu, eða öfugt,
ýtirðu einu sinni á skiptitakkann og svo
á viðeigandi stafatakka.
Tala eða sérstafur efst á takka sett
inn
Ýttu á virknitakkann og ýttu svo á
viðeigandi stafatakka eða haltu niðri
stafatakkanum. Til að slá inn nokkra
sérstafi í röð ýtirðu tvisvar á
virknitakkann og ýtir svo á viðeigandi
stafatakka. Til að skipta aftur yfir í
venjulega stillingu ýtirðu á
virknitakkann.
Sérstafur sem er ekki á lyklaborðinu
settur inn
Ýttu á sym-takkann og veldu og svo
staf.
Stafur sem er ekki á lyklaborðinu
settur inn
Hægt er að setja inn mismunandi
útfærslur stafa, til dæmis stafi með
kommum. Til að slá t.d. inn „á“ heldurðu
sym-takkanum inni og ýtir um leið
endurtekið á A þar til rétti stafurinn
birtist. Það fer eftir því hvaða tungumál
er valið hvaða bókstafir birtast og í
hvaða röð.
Broskarli bætt við
Ýttu á sym-takkann og veldu broskarl.
Broskarlar eru aðeins í boði fyrir texta-
og margmiðlunarskilaboð.
Ábending: Til að bæta við sérstaf sem
var notaður nýlega heldurðu ctrl-
Grunnnotkun 23
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
takkanum inni, ýtir á sym-takkann og
velur stafinn á sprettivalmyndinni.
Texti afritaður og límdur
1 Haltu skiptitakkanum inni og flettu
til að auðkenna textann sem þú vilt
afrita.
2 Ýttu á ctrl + C.
3 Opnaðu staðinn sem þú vilt líma
textann á og ýttu á ctrl + V.
Skipt um tungumál texta eða
flýtiritun virkjuð
Veldu
Valkostir
>
Innsláttarkostir
.