Um hugbúnað tækja og uppfærslur
forrita
Hugbúnaðaruppfærslur tækja og
uppfærslur forrita veita nýja möguleika
174 Finna hjálp
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
og bættar aðgerðir fyrir tækið þitt.
Uppfærsla á hugbúnaði getur einnig
bætt afköst tækisins.
Mælt er með að þú takir öryggisafrit af
persónulegum upplýsingum áður en þú
uppfærir hugbúnað tækisins.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki
til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en
uppfærslunni er lokið og tækið hefur
verið endurræst.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum
getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi
næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið
áður en uppfærslan er ræst.
Eftir að þú uppfærir hugbúnað tækisins
eða forrit kunna leiðbeiningarnar í
notendahandbókinni að vera úreltar.