Vottorðastjórnun
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Almennar
>
Öryggi
>
Vottorðastjórnun
.
Stafræn vottorð eru notuð til að
staðfesta uppruna hugbúnaðar en
tryggja ekki öryggi. Um fjórar tegundir
134 Öryggi og gagnastjórnun
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
vottorða er að ræða: heimildavottorð,
einkavottorð, vottorð traustra síðna og
tækjavottorð. Ef tengingin er örugg
getur verið að miðlari sendi vottorð í
tækið. Þegar vottorðið er móttekið er
það sannvottað af heimildavottorði
sem er vistað í tækinu. Látið er vita ef
uppruni miðlarans er ekki staðfestur
eða ef ekki er rétt vottorð í símanum.
Þú getur sótt vottorð á vefsvæði eða
móttekið vottorðið sem skeyti. Nota
ætti vottorð þegar senda á
trúnaðarupplýsingar til netbanka eða
miðlara. Einnig ætti að nota þau til að
minnka hættuna á vírusum eða öðrum
skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er
niður af netinu og settur upp í tækinu.
Ábending: Þegar nýju vottorði er bætt
við skal sannvotta uppruna þess.