Nokia E5 00 - Fjarstillingar

background image

Fjarstillingar

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Gagnastjóri

>

Stj. tækis

.

Með stjórnanda tækis er hægt að stjórna

stillingum, gögnum og hugbúnaði í

tækinu úr fjarlægð.
Þú getur tengst miðlara og fengið

sendar stillingar fyrir tækið þitt. Þú

getur fengið miðlarasnið og

mismunandi stillingar frá

þjónustuveitunni þinni eða

upplýsingadeild. Stillingarnar kunna að

innihalda tengistillingar og aðrar

stillingar fyrir mismunandi forrit í

tækinu. Mismunandi getur verið hvaða

valkostir eru í boði.

Fjarstillingartengingin er venjulega

ræst af miðlaranum þegar uppfæra þarf

stillingar tækisins.

Til að búa til nýtt miðlarasnið skaltu

velja

Valkostir

>

Miðlarasnið

>

Valkostir

>

Nýtt miðlarasnið

.

Þú færð e.t.v. þessar stillingar frá

þjónustuveitanda þínum í

stillingarboðum. Ef ekki skaltu

skilgreina eftirfarandi:

Nafn miðlara — Færðu inn heiti

stillingamiðlarans.

Auðkenn.nr. netþjóns — Færðu inn

auðkenni stillingamiðlarans.

Lykilorð miðlara — Sláðu inn lykilorð

til að miðlarinn beri kennsl á tækið þitt.

Aðgangsstaður — Veldu aðgangsstað

sem nota á með tengingunni, eða búðu

til nýjan aðgangsstað. Þú getur einnig

valið að beðið sé um aðgangsstað í

hvert sinn sem þú tengist. Þessi stilling

er aðeins í boði ef þú hefur valið

Internet

sem gerð flutningsmáta.

Heimaveffang — Færðu inn veffang

stillingamiðlarans.

Gátt — Færðu inn gáttarnúmer

miðlarans.

Öryggi og gagnastjórnun 137

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

Notandanafn og Lykilorð — Sláðu inn

notandanafnið og aðgangsorðið að

stillingamiðlaranum.

Leyfa stillingar — Veldu

til að leyfa

miðlaranum að hefja stillingalotu.

Samþ. allar sjálfkrafa — Veldu

ef þú

vilt ekki að miðlarinn biðji þig um

staðfestingu þegar hann hefur

stillingalotu.

Sannvottun símkerfis — Veldu hvort

nota á http-sannvottun.

Notandanafn símkerfis og Lykilorð

símkerfis — Sláðu inn notandanafn og

aðgangsorð fyrir http-sannvottun. Þessi

stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið

að nota

Sannvottun símkerfis

.

Til að tengjast miðlaranum og taka við

stillingum fyrir tækið þitt velurðu

Valkostir

>

Hefja stillingu

.

Til að skoða stillingaskrá valins sniðs

velurðu

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Til að uppfæra hugbúnað tækisins með

ljósvakaboðum velurðu

Valkostir

>

Leita að uppfærslum

. Uppfærslan

eyðir ekki stillingum þínum. Þegar þú

móttekur uppfærslupakkann í tækinu

skaltu fylgja leiðbeiningunum á

skjánum. Tækið er endurræst þegar

uppsetningunni er lokið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum

getur falið í sér stórar gagnasendingar

(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi

næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið

áður en uppfærslan er ræst.

Viðvörun:

Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki

til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en

uppfærslunni er lokið og tækið hefur

verið endurræst.