Fast númeraval
Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
og
Valkostir
>
SIM-númer
>
Tengil. í
föstu nr.vali
.
Með föstu númeravali er hægt að
takmarka símtöl úr tækinu þannig að
aðeins sé hægt að hringja í ákveðin
símanúmer. Það styðja ekki öll SIM-kort
fast númeraval. Nánari upplýsingar fást
hjá þjónustuveitu.
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka
símtöl eru í notkun (svo sem útilokun,
lokaður notendahópur og fast
númeraval) kann að vera hægt að
hringja í opinbera neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið. Útilokun og
flutningur símtala getur ekki verið virkt
samtímis.
Nauðsynlegt er að hafa PIN2-númer til
að kveikja og slökkva á föstu númeravali
og breyta tengiliðum í föstu
númeravali. Þú færð PIN2-númerið hjá
þjónustuveitunni.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Virkja fast númeraval — Kveikja á
föstu númeravali.
Slökkva á föstu nr.vali — Slökkva á
föstu númeravali.
Nýr SIM-tengiliður — Sláðu inn
símanúmer og nafn tengiliðar sem
leyfilegt er að hringja í.
Bæta í úr Tengiliðum — Afrita tengilið
af tengiliðalistanum í listann yfir fast
númeraval.
Til að geta sent textaskilaboð til SIM-
tengiliða í föstu númeravali þarftu
einnig að bæta númeri
skilaboðamiðstöðvarinnar við listann.