Dulkóðun minnis tækisins eða
minniskorts
Til að dulkóða minni tækisins velurðu
Minni símans
.
Til að dulkóða minniskort velurðu
Minniskort
og svo úr eftirfarandi:
Dulkóða án þess að vista lykil
— Dulkóðaðu minniskort án þess að
vista dulkóðunarlykilinn. Ef þú velur
þennan valkost geturðu ekki notað
minniskortið í öðrum tækjum og ef þú
velur upprunalegar stillingar geturðu
ekki afkóðað minniskortið.
Dulkóða og vista lykil — Dulkóðaðu
minniskortið og vistaðu lykilinn
handvirkt í sjálfgefinni möppu. Geymdu
lykilinn á öruggum stað utan tækisins,
til öryggis. Til dæmis geturðu sent
lykilinn í tölvuna. Sláðu inn
aðgangssetningu fyrir lykilinn og heiti
fyrir skrá lykilsins. Aðgangssetningin
ætti að vera löng og flókin.
Dulkóða með endursettum lykli
— Dulkóðaðu minniskortið með
lyklinum sem þú hefur fengið. Veldu
skrá lykils og sláðu inn
aðgangssetninguna.